Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.

Workshops and Clinics IS

Gagnvirk og upplifunarmiðuð ferðaþjónusta þarf hvorki að byggjast á dýrum sýndarveruleikabúnaði né flókinni tækni. Hægt er að skapa ríkari upplifun fyrir gesti með frásögnum, hljóði, QR-kóðum, myndvörpun, efni fyrir snjallsíma, gagnvirkum verkefnum og fjölmörgum öðrum aðgengilegum lausnum.

UPLIFT hefur þróað fjórar hagnýtar vinnustofur og fjórar verkfærakistur til innleiðingar sem ásamt fræðslumyndböndum verkefnisins hjálpa þér að kanna þessa möguleika og breyta hugmyndum í framkvæmd.

Fræðsluefnið er sérstaklega sniðið að þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og minni skipulagsheilda. Tekið er mið af takmörkuðu fjármagni, mismunandi tækniþekkingu og ólíku aðgengi að auðlindum. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í gagnvirkri ferðaþjónustu eða ert þegar með hugmynd sem þú vilt þróa áfram geturðu byrjað á því stigi sem hentar þér.

Hvernig á að nýta fræðsluefnið?

Vinnustofurnar og verkfærakisturnar eru hannaðar til að vera sveigjanlegar, hagnýtar og auðveldar í notkun.

Þú getur farið í gegnum öll fjögur viðfangsefnin í réttri röð og þannig mótað heildstæða áætlun fyrir þróun upplifunarinnar. Einnig geturðu valið einstök viðfangsefni sem svara tilteknum áskorunum eða því stigi sem þú ert á í þróunarferlinu.

Fræðsluefnið hjálpar þér að vinna markvisst frá hugmynd að framkvæmd. Þú getur byrjað á einföldum og hagkvæmum lausnum sem hægt er að prófa á næstu sex mánuðum og síðan skoðað hvernig þróa megi upplifunina áfram á komandi árum.

Með því að nýta fræðsluefnið geturðu öðlast betri skilning á því hvaða möguleika gagnvirk ferðaþjónusta býður fyrirtækinu þínu eða skipulagsheild, komið auga á raunhæf tækifæri, prófað hugmyndir áður en ráðist er í umfangsmiklar fjárfestingar og mótað skýr næstu skref við þróun áhugaverðrar ferðaþjónustu tengdri bókmenntum og kvikmyndum.

Vinnustofur

Vinnustofur UPLIFT gefa þér tækifæri til að skoða lykilspurningar sem tengjast þróun gagnvirkrar ferðaþjónustu áður en þú ákveður hvaða lausnir þú vilt innleiða.

Í stað þess að byrja á tækninni hvetja vinnustofurnar þig til að huga fyrst að fyrirtækinu, markhópnum, sögunni sem þú vilt segja, þeim auðlindum sem þú hefur yfir að ráða og markmiðum þínum. Leiðbeinandi spurningar og verkefni hjálpa þér að greina tækifæri, ræða áskoranir og meta hvaða tegund og stig upplifunar hentar þínum aðstæðum.

Þú getur unnið vinnustofurnar á eigin spýtur eða í samstarfi við samstarfsfólk, samstarfsaðila og aðra hagaðila í nærumhverfinu. Þær nýtast einnig kennurum og leiðbeinendum sem starfa með ferðaþjónustufyrirtækjum eða fólki sem hyggst stofna eigin fyrirtæki.

Saman mynda vinnustofurnar skipulagt ferli sem leiðir þig frá því að öðlast skilning á upplifunarmiðaðri ferðaþjónustu yfir í að þróa, fjármagna og markaðssetja eigin upplifun.

Verkfærakistur til innleiðingar

Verkfærakistur UPLIFT hjálpa þér að koma hugmyndunum sem þú hefur unnið með í vinnustofunum í framkvæmd.

Hverjum hluta fylgja æfingar og verkefni sem styðja þig við að þróa, prófa og útfæra eigin hugmyndir að gagnvirkri ferðaþjónustu. Markmiðið er ekki að skapa umfangsmikla eða tæknilega flókna upplifun strax í upphafi. Þess í stað er lögð áhersla á að byrja í hæfilegum skrefum, prófa aðgengilegar lausnir og byggja upplifunina upp smám saman.

Leiðbeiningarnar nýtast jafnt við þróun einfaldra hugmynda sem byggja á frásögnum eða QR-kóðum og við mótun langtímaáætlana sem fela í sér notkun þróaðri tækni.

Með því að nýta verkfærakisturnar samhliða vinnustofunum færðu hagnýta leiðsögn sem hjálpar þér að komast frá spurningunni „Hvað gætum við gert?“ yfir í „Hvernig getum við komið því í framkvæmd?“

Viðfangsefni 1: Hvers vegna gagnvirk tækni skiptir máli fyrir fyrirtækið þitt

Í þessum hluta er farið yfir grunnhugmyndir gagnvirkrar ferðaþjónustu og mismunandi stig upplifunar, allt frá einföldum frásagnaraðferðum sem krefjast lítillar tækni til þróaðri tæknilausna á borð við viðbótarveruleika og sýndarveruleika. Þú færð tækifæri til að meta hvaða lausnir eru raunhæfar fyrir fyrirtækið þitt eða skipulagsheild með hliðsjón af markmiðum, færni, auðlindum og fjárhagsáætlun.

Vinnustofan hjálpar þér að greina tækifæri til að auðga þá upplifun sem þú býður gestum nú þegar. Verkfærakistan styður þig síðan við að móta eigin áætlun um þróun gagnvirkar ferðaþjónustu.

Nýttu þetta viðfangsefni til að: öðlast skilning á möguleikum gagnvirkrar ferðaþjónustu, finna það tæknistig sem hentar þinni starfsemi og móta raunhæfa áætlun um framtíðarþróun.

Viðfangsefni 2: Staðfærsla, vörumerki, markhópar og þróun upplifunarmiðaðrar frásagnar

Þessi hluti hjálpar þér að skilgreina markhópa þína og velta fyrir þér hvað þú vilt að gestir hugsi, upplifi og geri meðan á heimsókn þeirra stendur. Þú skoðar hvernig vörumerki þitt, áfangastaður, tengsl við bókmenntir, kvikmyndatökustaðir eða menningarverðmæti geta skapað grunn að áhugaverðri og gagnvirkri frásögn.

Í vinnustofunni er farið yfir lykilspurningar um staðfærslu, markhópa, þarfir gesta og frásagnaraðferðir. Verkfærakistan hjálpa þér síðan að þróa hugmyndirnar áfram í frásagnir, móta upplifunarferli gesta og skapa gagnvirka frásagnarþætti sem hægt er að prófa og þróa frekar.

Nýttu þetta viðfangsefni til að: skilgreina markhópa þína, styrkja stöðu þína á markaði, móta þá upplifun sem þú vilt bjóða og þróa gagnvirka frásögn sem endurspeglar sérstöðu og gildi fyrirtækisins.

Viðfangsefni 3: Fjárhagsáætlanir, kostnaður, fjármögnun og ábyrgir starfshættir við þróun upplifunar

Í þessum hluta er fjallað um hagnýt og fjárhagsleg atriði sem þarf að hafa í huga við þróun gagnvirkrar ferðaþjónustu. Þú færð leiðsögn við að meta mögulegan kostnað og greina hagkvæmar og sveigjanlegar leiðir til þróunar, meðal annars með gerð frumgerða, ódýrum tilraunaverkefnum, áfangaskiptum fjárhagsáætlunum og stigvaxandi fjárfestingum.

Vinnustofan skapar vettvang til að ræða fjárhagslega forgangsröðun, tiltækar bjargir og mögulega áhættu. Með verkfærakistunni geturðu hafist handa við að móta raunhæfa fjárhagsáætlun og skoðað hvernig hægt er að prófa hugmynd áður en ráðist er í umfangsmiklar fjárfestingar.

Einnig er fjallað um mikilvæg lagaleg og siðferðileg atriði, svo sem leyfisveitingar, höfundarrétt, eignarhald á efni, persónuvernd og virðingu fyrir menningarlegum sérkennum. Með því að huga að þessum þáttum snemma í þróunarferlinu má forðast algeng vandamál og stuðla að ábyrgri þróun upplifunarinnar.

Nýttu þetta viðfangsefni til að: öðlast yfirsýn yfir mögulegan kostnað, móta raunhæfa fjárhagsáætlun, kanna hagkvæmar leiðir til að prófa hugmyndina þína og greina þau lagalegu og siðferðilegu atriði sem skipta máli fyrir þína starfsemi.

Viðfangsefni 4: Markaðssetning og sala upplifunarmiðaðrar ferðaþjónustu með frásögnum

Í þessum hluta er skoðað hvernig nýta má frásagnir við markaðssetningu og sölu á gagnvirkri bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu. Þú kynnir þér hvernig hægt er að miðla upplifuninni á vefsíðum, samfélagsmiðlum og ferðaþjónustuvefjum með skýrri og trúverðugri frásögn. Einnig er fjallað um hagnýt atriði á borð við verðlagningu, bókanir og ferli gesta, allt frá því að þeir uppgötva upplifunina þar til þeir mæta á staðinn og taka þátt.

Vinnustofan hjálpar þér að skilgreina þá sögu sem þú vilt miðla og velja þær samskiptaleiðir sem henta markhópum þínum best. Innleiðingarleiðbeiningarnar styðja þig síðan við að útfæra frásögnina í hagnýtt kynningarefni og skapa einfalt og skilvirkt ferli sem auðveldar gestum að bóka eða taka þátt í upplifuninni.

Markmiðið er að auðvelda væntanlegum gestum að uppgötva upplifunina, skilja gildi hennar, tengjast sögunni og taka næsta skref.

Nýttu þetta viðfangsefni til að: þróa frásögn fyrir markaðssetningu, velja viðeigandi miðlunarleiðir, einfalda ferlið frá því að gestir uppgötva upplifunina þar til þeir bóka og breyta áhuga þeirra í þátttöku.

menu