Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.

Innsýn í gagnvirka ferðaþjónustu: Rannsóknir og góðar starfsvenjur

Verið velkomin á síðu UPLIFT um rannsóknir og góðar starfsvenjur - inngangspunktur þinn inn í tækifæri stafrænnar og gagnvirkrar tækni í kvikmynda- og bókmenntaferðamennsku.

Landslag ferðaþjónustunnar er í örri þróun en stafræn tækni á borð við viðbótarveruleika (AR), sýndarveruleika (VR) og gervigreind (AI) bjóða upp á nýjar leiðir til að tengja ferðamenn við sögur, staði og menningu. Rannsóknarskýrsla UPLIFT er hönnuð til að hjálpa kennurum og fagfólki í ferðaþjónustu til að kynna sér þau tækifæri og áskoranir sem fylgja stafrænni tækni og hvernig hægt sé að innleiða nýsköpun á þessu sviði inn í kennslustofuna.

Í gegnum þessi tvö úrræði sem við kynnum hér, bjóðum við innsýn í þá þróun sem mótar stafræna ferðaþjónustu, ásamt hagnýtum dæmum um hvernig þessi verkfæri eru nú þegar notuð um alla Evrópu. Hvort sem þú ert að þróa námskeið, stjórna ferðaþjónustufyrirtæki eða skipuleggja menningarupplifun, þá eru þessi úrræði hér til að hvetja til aðgerða og byggja upp getu.

Úrræðin samanstanda af tveimur afurðum:

1

Rannsóknarskýrsla

Þessi skýrsla skoðar hvernig viðbótarveruleiki (AR), sýndarveruleiki (VR) og gervigreind (AI) eru að breyta því hvernig við nálgumst menningararf sem tengist bókmenntum og kvikmyndum. Skýrslan kortleggur helstu þróun, tækifæri og áskoranir á þessu sviði í ferðaþjónustu og menntageiranum.

2

Samantekt af góðum starfsvenjum

Ríkulegt safn af raunverulegum dæmum víðsvegar að úr Evrópu sem sýnir hvernig stafræn og gagnvirk tækni er nú þegar notuð til að auka upplifun gesta. Allt frá bókasöfnum til alþjóðlegra kvikmyndahátíða, samantektin býður upp á fjölbreyttar hugmyndir að áhugaverðum og gagnvirkum viðburðum.

Hvað munt þú græða?

Með því að nýta þessi úrræði munu kennarar, þjálfarar, lítil og meðalstór fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar:

  • Skilja hvernig stafræn tækni getur auðgað frásögn og staðbundna ferðaþjónustu.
  • Þekkja færni sem þarf til að samþætta stafræna tækni í starfsmenntun og ferðaþjónustu.
  • Kanna dæmi um nýsköpun víðsvegar að úr Evrópu til að aðlaga að eigin aðstæðum.
  • Tengjast núverandi þróun og framtíð menntunar í ferðaþjónustu.
  • Fá innsýn sem styður námskrárgerð, nýsköpun í viðskiptum og þátttöku gesta.

Vertu með okkur í að endurhugsa hvernig Evrópa segir sögur sínar - halaðu niður úrræðunum í dag og taktu þátt í að móta snjalla og aðlaðandi framtíð ferðaþjónustunnar.

Rannsóknarskýrsla

Samantekt um góðar starfsvenjur

menu